persónu­vernd.

Stutta útgáfan: við geymum sem minnst, seljum ekkert og eyðum öllu fljótt.

Hvað við geymum

Nafnið á viðburðinum, dagana sem koma til greina, nöfnin sem fólk skrifar og svörin (kemst, ef þarf, kemst ekki). Nöfn eru persónuupplýsingar, svo skrifaðu bara það sem hópurinn þinn þekkir.

Vafrakökur

Tvær tegundir, báðar nauðsynlegar: ein sem man að þú bjóst til könnunina og ein sem man þitt svar svo þú getir breytt því. Engar auglýsinga- eða rakningarkökur.

Hversu lengi

Öllu er eytt sjálfkrafa 30 dögum eftir síðasta daginn í könnuninni.

Þinn réttur

Þú getur eytt þínu svari hvenær sem er á svarsíðunni. Viltu láta eyða heilli könnun eða fá afrit af gögnum? Hafðu samband.

Ábyrgðaraðili: Birkir Örn Karlsson. Netfang: birkir@204.is.